Yndislegir hvolpar

Jæja nú eru  hvolparnir orðnir vel stórir og vel duglegir að minnsta kosti þurfa þeir ekki að sofa nærri því jafn mikið og þeir gerðu. Enn þeir fá að fara út 3 sinnum á dag og fá þá að leika sér að minnsta kosti í klukkutíma í einu og það finnst þeim svo gaman að þeir eru eins og beljur þegar þeim er hleypt út fyrst á sumrin. Svo er farið að styttast í það að þeir fara að fara til nýrra eiganda og er nú þegar búið að selja Blíðu, Bollu og Bósa þannig að eftir eru Breki, Barón og Birta sem eru alveg yndislegir hundar og alls ekki síðri enn hinir.

En ef einhverjum langar í yndislegan hvolp þá hafði bara samband í síma 8972359 eða ingahk@simnet.is

Inga Hilda


Enn til sölu

Nú er maður svona aðeins farinn að auglýsa greyin meira til sölu og hafa nokkrir haft samband við okkur, en þar fyrir utan eru þau Breki, Barón, Birta og Blíða öll enn til sölu. Þau eru öll alveg yndsleg þótt þau séu ekki eins, enda eru þau farinn að sýna svona mismunandi karakter sem betur fer því ekki væri nú nógu gott ef allir íslenskir hundar væru eins. Sum eru meiri svona að leika sér og sýna takta á meðan aðrir vilja helst bara kúra hjá manni og láta strjúka sér en þar fyrir utan eru þau öll mjög dugleg.

Jæja segjum þetta fínt í bili enn endilega hafið samband ef ykkur langar í flottustu hvolpa sem til eru!!!!!!!!!!!!! ingahk@simnet.is eða 8972359

Inga Hilda


Orðnir svo stórir!!!!!!

Jæja enn gengur allt mjög vel og líka sem betur fer. Hvolparnir eru voðalega duglegir að borða og sést það kannski líka á þeim. Enn í dag fengu þeir að fara smá út í garð og það þótti þeim alls ekki leiðinlegt að getað hlaupið um í grasinum hérna og leikið sér við mömmu sína. Svo eru þeir komnir með sérstakt herbergi og þá getað þeir bara hlaupið um þar og svo lagt sig í kassanum sem þeir eru búnir að vera í frá upphafiTounge Svo er það nýjasta hjá þeim núna það er að naga kaðal og leika sér með alls konar dót eins og bolta og dollur svo fara þeir í smá reipitog við mömmu sína annað slagið því henni finnst nú frekar leiðinlegt að fá ekki að vera með í leiknum og reynir mikið að stela dótinu frá þeim.Grin 

En endilega látið heyra í ykkur ef ykkur langar í rosa fallegan hvolp sem að vísu verður ekki afhentur fyrr en eftir um mánuð

ingahk@simnet.is eða í síma 8972359 Inga Hilda


Hvolpar til sölu

Enn jæja er þá loksins búin að setja inn fullt af nýjum myndum af litlu gríslingunum og sést nú vel á myndunum hvað þeir eru allir mjög fallegir. Enn svo er það næsta að fara að auglýsa þessi grey þótt maður tími því ekki,Errm enn þeir fá nú samt ekki að fara fyrr en í kringum 17 júní því þá verða þeir 8 vikna gamlir. Að vísu er ég mjög líkleg búin að lofa 2 hvolpa og eru það Bolla og Bósi þannig að þá eru eftir: Breki, Barón, Blíða og Birta.Happy

Enn ef einhverjum vantar glæsilegan íslenskan hvolp þá bara hafa samband við mig á ingahk@simnet.is eða í síma 8972359


Smá fréttir

Jæja komin tími á smá upplýsingar um þessa yndislegu hvolpa sem maður á hérna. En þeir eru allir voðalega duglegir að drekka og eru sko alveg að þyngjast eftir því, núna eru flestir búnir að ná því að hafa þyngst um 500 gr síðan þeir fæddustu. Píla greyið gerir nú voða lítið annað enn að gefa þeim og þeir eru líka frekar frekir á hana og er hún komin með nokkra sogbletti á júgurinn, greyið litla. Svo fer nú að koma að því að þeir fara að opna augun og er svona aðeins farið að myndast fyrir því einnig eru þeir farnir að reyna að ganga enn eru nú samt mjög miklir klaufar við þetta allt saman því bumban er svo stór að þeir draga hana á eftir sérLoL Enn svo fer ég að setja inn fleiri myndir af þeim öllum enda komin tími til því þeir eru búnir að breytast svo mikið og eru þeir orðnir miklu ljósari en þeir voru fyrst.

Kveðja Inga


Allt gengur vel

Jæja nú eru hvolparnir orðnir 4 daga gamlir og allt gengur mjög vel. Þeir eru voðalega duglegir að sjúga mömmu sína og sést það vel á þyngdinni á þeim því allir þyngjast vel þótt sumir þyngjast aðeins meira en aðrir. Þegar þeir fæddust voru eyrun á þeim alveg föst við hausinn á þeim en nú eru þau aðeins farinn að lyftast upp og svo er skottið aðeins farið að dyllast, ekki smá sætt. Svo eru þeir nú ekki eins áttavilltir eins og þeir voru og eru þeir svona aðeins farnir að átta sig hvernig þeir eiga að elta mömmu sína og þegar þeir eru svangir þá fara þeir á sprettnum eftir henni. En það hafa svo margir verið að spurja mig hvaða kyn þeir eru og eru 3 strákar og 3 stelpur og eins og áður sagði vegnar þeim öllum mjög vel.

Píla er öll að braggast greyið þótt að hún sé mjög slöpp ennþá. Mér finnst hún horuð greyið og er hún alls ekki nógu dugleg að borða enn erum við að bæta úr því núna og erum við að elda handa henni lifrapylsu núna og fær hún hana núna í kvöld áður en hún fer að sofa, þvílík prinsessa.

En segjum þetta fínt í bili Inga


Hvolpar fæddir

Jæja þá er loksins þessir yndislegu 6 hvolpar fæddir og gekk það bara mjög vel. Því sá fyrsti kom kl 6:50 og sá síðast kom kl 8:48 þannig að þetta gekk ekki lengi fyrir sig. En það gengur bara mjög vel með þá þeir eru duglegir að hanga á og drekka vel enda hafa þeir allir þyngst um 20 gr á einum sólarhring.  En ég reyni að ná myndum af hverjum og einum og setja líka fl myndir hérna inn.

Kveðja Inga 


« Fyrri síða

Um bloggið

Píla

Höfundur

Inga Hilda Ólfjörð Káradóttir
Inga Hilda Ólfjörð Káradóttir

Píla er æðislegur íslenskur fjárhundur sem var að eignast 6 stk af yndislegum hvolpum þann 17.04.07 með honum Kirkjufells Kappa.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þoka að leika sér í vatni
  • Þoka og Píla
  • Barón flotti á sýningu með eiganda sínum
  • Breki flotti á sýningu með eiganda sínum
  • Bósi alveg eins og mamma sín

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband