Allt gengur vel

Jæja nú eru hvolparnir orðnir 4 daga gamlir og allt gengur mjög vel. Þeir eru voðalega duglegir að sjúga mömmu sína og sést það vel á þyngdinni á þeim því allir þyngjast vel þótt sumir þyngjast aðeins meira en aðrir. Þegar þeir fæddust voru eyrun á þeim alveg föst við hausinn á þeim en nú eru þau aðeins farinn að lyftast upp og svo er skottið aðeins farið að dyllast, ekki smá sætt. Svo eru þeir nú ekki eins áttavilltir eins og þeir voru og eru þeir svona aðeins farnir að átta sig hvernig þeir eiga að elta mömmu sína og þegar þeir eru svangir þá fara þeir á sprettnum eftir henni. En það hafa svo margir verið að spurja mig hvaða kyn þeir eru og eru 3 strákar og 3 stelpur og eins og áður sagði vegnar þeim öllum mjög vel.

Píla er öll að braggast greyið þótt að hún sé mjög slöpp ennþá. Mér finnst hún horuð greyið og er hún alls ekki nógu dugleg að borða enn erum við að bæta úr því núna og erum við að elda handa henni lifrapylsu núna og fær hún hana núna í kvöld áður en hún fer að sofa, þvílík prinsessa.

En segjum þetta fínt í bili Inga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að allt gengur vel. En Inga, við erum vístnógu þreyttar eftir að hafa gengið með eitt barn, fætt og gefa brjóst.........hvað þá ef það væru sex stykki!!!

Hugrún (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 19:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Píla

Höfundur

Inga Hilda Ólfjörð Káradóttir
Inga Hilda Ólfjörð Káradóttir

Píla er æðislegur íslenskur fjárhundur sem var að eignast 6 stk af yndislegum hvolpum þann 17.04.07 með honum Kirkjufells Kappa.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þoka að leika sér í vatni
  • Þoka og Píla
  • Barón flotti á sýningu með eiganda sínum
  • Breki flotti á sýningu með eiganda sínum
  • Bósi alveg eins og mamma sín

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband