3.9.2007 | 20:33
Fréttir AFTUR
Jæja þá er ég að hugsa um að opna þessa síðu aftur. Ég var að hugsa um að hafa þetta þannig núna að ég setji hérna inn fréttir af hvolpunum sem Píla og Kappi áttu. Enn til að láta þessa síðu ganga verð ég að fá fréttir af hvolpunum í gegnum ykkur sem eigið hvolpana núna og svo væri auðvitað líka gaman að fá myndir af hvolpunum svo ég geti sett inn hérna líka.
Svo ég komi nú með smá fréttir núna þá er Píla farin að braggast eftir hvolpalætin sem voru hérna enn að vísu er hún með einhver einkenni eftir meðgönguna því hún er búin að vera svolítið hölt ef hún fer í lengri göngutúra og telur dýri þetta bara vera eftir meðgönguna og vill meina að þetta sé eitthvað við mjaðmirnar hennar sem muni jafna sig, vonandi sem fyrst.
Kappi hefur það alltaf jafn gott og er hann að fara á næstu sýningu sem verður haldin 6-7 október og mun hann ábyggilega brillera þar eins og vanalega enda er þetta gullfallegur hundur sem er þar á ferð. Enn vonandi komast einhverjir af hvolpaeigendum á þessa sýningu til að hitta hana Dittu eiganda Kappa og leyfa henni að hitta hvopana, sem henni langar gjarnan að sjá
Um bloggið
Píla
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.